En eins og sést í færslunni fyrir neðan átti ég afmæli síðasta föstudag. Dagurinn byrjaði frekar furðulega þar sem að í fyrsta sinn...síðan ég man ekki hvenær var ég ekki vakin með afmælissöng og m0rgunmat (verður bara tekið þegar að ég kem heim;)!!) Opnaði fínu pakkana mína sem mamma og María voru svo indælar að koma með út til mín! Mamma hringdi svo í mig og öll familían söng svo fyrir mig afmælissönginn í gegnum símann...mjög krúttlegt! Eva, Hanna, Karitas & Lilja komu svo til mín í smá brunch og höfðum við það bara rosa kósý :) Ég var svo bara í rólegheitunum mest allan daginn - var búin að panta borð á stað niðrí bæ sem að heitir Cat Club og myndaðist smáá stress um kvöldið þar sem að ég þurfti auðvitað að vesenast smá og vera frekar mikið á síðustu stundu...en þetta reddaðist á endanum (ég skulda ykkur ennþá kokteil stúlkur!!) En staðnum er skipt í tvennt; continental & thai. Ég pantaði borð á continental en þegar að komið var á staðinn var borðið okkar í thai hlutanum...stelpunum leist nú ekkert allt of vel á staðinn í fyrstu en svo held ég að flestar hafi verið nokkuð ánægðar með matinn :)
Eftir matinn var svo haldið niðrí bæ, Maren megadriver skutlaði okkur niðrá Viking þar sem að við komum okkur fyrir á í horninu okkar. Hins vegar brá okkur frekar mikið þegar að við sáum að það var hljómsveit sem að var að setja upp inná Viking....ekkert mál....nema hvað að þeir voru allir fáránlega gamlir...er nokkuð viss um að allavega einn hafi sloppið út af elliheimlinu!! (Og hinir voru hver öðrum ófríðari!)Hanna stökk afstað til að spjalla við ellismellina og komst að því að þetta var local hljómsveit sem að heitir svo mikið sem Radio Pop! Þeir byrjuðu ekkert sérstaklega vel en þegar að leið á kvöldið skánuðu þeir svo...Hækkuðu heldur betur í áliti þegar að þeir spiluðu 'Birthday' með Bítlunum fyrir mig...kunni virkilega að meta það :) Á meðan við stelpurnar skáluðum í kampavíni! Ótrúlega gaman!! Við dönsuðum svo úr okkur allt vit fram undir morgun! Takk aftur æðislega fyrir kvöldið skvísur þetta var æði!!! Ótrúlega skemmtilegt afmæliskvöld :D
Veit ekki hvaða vitleysingur þetta er sem ákvað að stilla sér upp fyrir aftan okkur...en hún var allavega grúppía Radio Pop #1!!!
Annars erum við bara búnar að vera í rólegheitunum undanfarna daga. Á laugardaginn kíkti ég aðeins niðrí bæ með Maren litlu frænku ;) Og var komið jólaskap í liðið, mjög kósý að rölta um bæinn :) Eftir bæjarferðina var svo brunað til Hönnu þar sem að var búið að bjóða í jólaglögg heima hjá henni sem að var rosa fínt. Á sunnudeginum fórum við á international basar sem að er alltaf fyrir jólin hér í Lúx. Þá er fólk frá hinum ýmsu þjóðum sem að er að kynna/selja vörur frá heimalandinu. Og var Ísland auðvitað með sinn bás, þar sem að voru t.d. seldar peysur frá Farmers Market ásamt ýmsum öðrum lopavörum, íslenskt nammi, malt & appelsín og svo var hægt að kaupa sér ýmislegt að borða eins og t.d. flatkökur m. hangikjöti og pulsur. Löbbuðum við því mjög sáttar út með íslenska ss pulsu og appelsín :)
Ég og Hanna erum svo búnar að reyna frá því á mánudagskvöldið að kaupa okkur smá Kanye varning á síðunni hans.....en af einhverjum ástæðum er kortunum okkar alltaf neitað...mig grunar að það sé vegna þess að kortin eru íslensk...að það sé bara búið að loka á íslensku kortin! MJÖG mikið bögg!! En það er vonandi að við finnum einhverja lausn á þessu vandamáli okkar! Annars er ég hrædd um að við verðum frekar mikið vonsviknar!
En ég held að ég hætti nú bara hér þar sem að ég er að fara að borða...
Gangi svo öllum sem að eru að fara í jólapróf rosalega vel...ég mun hugsa til ykkar þegar að ég verð að njóta þess að gera ekki neitt...múhahaha!!
Lag dagsins: Welcome to Heartbreak - Kanye West ... maðurinn er einfaldlega of nettur fyrir lífið og nýi diskurinn hans er GEÐVEIKUR!!!
5 comments:
hahaha sorry en verð að kommenta á það að hljómsveitin hafi skánað eftir því sem að leið á... hvað varstu þá búin með marga drykki?? hahaha
og takk fyrir gott blogg... nú get ég haldið áfram að diffra og leysa jöfnur og annað svakalega spennandi af enn meiri krafti;)
Luv frá London
hahahaha...ekki málið Elín mín ;) Vonandi að þér hafi nú gengið vel í prófinu!! En jú það getur verið að það hafi eitthvað spilað inní hahaha en aðalega var það vegna þess að þeir fóru að spila skárri lög ;)
isss léleg afsökun;)
haha neinei ok;)
en gekk held ég bara ágætlega;) góðu hugsanirnar þínar skiluðu sér klárlega;)
Vá ég kann að meta blogg fyrir þá sem eru í prófum!! Og það að þú teljir niður fyrir mig dagana þangað til ég er búin í prófu :)
Ég er semsagt yfir höfuð bara frekar sátt með þig stelpa! :D
Bara svona að láta þig vita...
Kv. HildurVala
Til hamingju með afmælið þótt seint sé. Hafðu það gott.
Kveðja Kristín
Post a Comment